Ullapeysa og gúmmískór
Hér á bæ er þynnka dauðans, ég er að rannka við mér núna fyrst eftir gærkveldið ;)
Í gær fórum við bekkurinn í bæjarferð til Reykjavíkur á listasöfn að skoða listaverk í sex klukkutíma, þar sem ég er svona súper menningarleg og listræn, þá átti ég mjög vel heima þarna
Svo eftir það fór ég og splæsti vísakortinu á eitt stykki myndavél, því ég get ekki verið í þessum kúrsum nema eiga myndavél.. en þá hef ég víst enga afsökun núna til að setja ekki myndir inn á barnaland...
Allavega brunaði ég aftur upp á Hvanneyri og tók mig til fyrir fjárhúsgrillið sem var haldið í gær. Mætti þar gallvösk í gallapilsi og leðurjakka, en neinei... ALLIR VORU Í ULLARPEYSUM OG GÚMMÍSKÓM - NEMA ÉG!!! það var svolítið horft á mig og ábyggilega kvíslað eitthvað líka, en ég bætti það bara vel upp með því að hella mig of fulla...
þannig var það nú að Andrea fór austur til ömmu sinnar á fimmtudaginn þannig ég er barnlaus alla helgina, og ætlaði sko að notfæra mér það að detta almennilega í það í gær.... og viti menn, mér tókst það svo hryllilega að ég held að ég hafi verið komin heim um 1 leitið í gærkvöldi, blind full og búin að prófa aðeins klósettið á pöbbnum hérna... En þetta var rosa gaman samt, að kynnast fullt af nýju fólki og syngja með gítarspili og solleiðs...
Íbúðin mín var í annarlegu ástandi þegar ég rankaði við mér í morgun... ég veit ekki almennilega hvað ég hef verið að athafna mig þegar ég kom heim ;)
En allavega, ég veit það núna að ég ætla að halda mig við það áfram, sem ég er búin að gera allt árið, að drekka bara 4 - 5 bjóra á djamminu---- og ekki vera þunn...
Hvanneyrabúarnir
Það er bara dembt yfir okkur verkefnunum svona fyrstu vikuna og ekkert nema eitthver enskir erfiðir textar!! ;) en jæja það fylgir víst háskólanámi ;)
En fyrsta grilldjammið í skólanum er á föstudaginn svo ég verð að reyna plata hana mákonu mína til að passa fyrir mig svo ég geti kynnst fleirum ;)
Blogg í tilefni flutnings
Nú er stress og innpökkun hér á bæ. Ma og pa eru fyrir sunnan að ná í sendibíl, svo verður lagt í hann frá Bolungarvíkinni fögru á morgun. það þurfti náttúrlega að vera eitthvað smá vesen í kring um þetta allt saman, sem er nú alveg yfirstíganlegt ;) Maður gat svosem ekki búist við því að þetta yrði alveg vandræðalaust allt saman. þannig er það að ég fæ ekki íbúðina fyrr en á miðvikudaginn ;( en þarf að flytja dótið mitt á morgun suður, þvi ég hef bara bílinn um helgina... En þeir voru svo liðlegir í lbhi að lána mér íbúðina beint á móti mér, þannig ég þarf að flytja dótið yfir ganginn á miðvikudaginn, skulum bara vona að það verði eitthverjir sterkir karlar til í gameið þá ;)
Það verður skrýtið fyrir okkur mæðgur að fara annað aleinar og vera alveg útaf fyrir okkur... skulum bara vona að mamman sýni sýnar góðu hliðar og smile framan í heiminn og eignast eitthverjar vinkonur og kynnist fólki ;)
Annars verður liðið sem ég þekki að vera ógisslega duglegt að heimsækja mig líka ;)
Við skruppum inn í heydal á verslunarmannahelgina, sem er btw 3 skiptið sem við erum þar á verslunarmannahelgi!! (vá ég er svo glötuð ;) heeh)
En Bolungarvík mín fagra og Bolvikingar, bið að heilsa í bili og hitti ykkur aftur eftir mánuð reyndar í réttum ;)
