Auglýsing

Leit

Jólin koma... jólin koma..

26. nóvember 2006 klukkan 16:32

Bara vöknuð klukkan níu á sunnudagsmorgni, kannski ekki furða því ég sofnaði yfir hitler myndinni um 11 leitið í gærkvöldi...

 

Það verður ekki mikið upp úr fjárrækt hjá okkur þetta árið því ég fór upp í fjárhús um daginn og þá voru allir hrútarnir búnir að brjóta sér leið inn til fjóra kinda og ábyggilega fara upp á þær!! En þá voru fjórar kindur í annari stíu sloppnar, en nei, einn hrúturinn fór til þeirra daginn eftir og kláraði dæmið... þannig við verðum í  ljósmóðurstörfum um miðjan apríl í stað endaðan maí en og planið var!! Djöfull... svo vitum við ekkert hver fór upp á hvern og hver er faðir hvers lambs... buhuhu.... greddudýr..

 

Andrea er einu sinni enn veik þannig það var ekki mikið upp úr þessari fríhelgi eins og planið var.. En það eru bara 3 dagar eftir að skólanum dadadadara... svo 4 próf og jólafrí ( reyndar vinnan..)

Ég skil ekki hvernig fólk (krakkar) geta átt sér eitthvað líf og verið í skóla og vinnu, því ég er að verða geðveik á þessu.. mér líður eins og ég sé gift skólanum.. en eina við það maður fær ekkert til baka... ég verð að fara fá mér einkalíf, félagslíf og heimilislíf... þetta er ekki hægt.. Enda tel ég dagana þangað til maí kemur!!

 

Jæja eru þið farin að verla jólagjafir? Eða kannski bara búin að versla?? Látið heyra í ykkur people...

Það var nú svo....

16. nóvember 2006 klukkan 21:12
Djöfullinn... Lífið leikur ekki við okkur mæðgur þessa vikuna..

Ég átti afmæli á laugardaginn og það var voðalega næs hjá mér... Ég Jónína mamma pabbi svavar og sigga borðuðum saman um kvöldið með hvítvín rósavín og 3 rétta máltíð... ;) Humar í forrétt, nautalundir í aðalrétt og svo rjómabomba í eftirrétt, ásamt bjór og öðru sukkerí... jammí... Svo átti pabbi afmæli á sunnudag því vorum við með kökur og svoleiðis þá.. Heilsan var ekki upp á sitt besta þá... Ég´og ´jónína lágum upp í sófa eins og skötur og átum á milli þess ;) Góðar...

Svo byrjaði ballið... Andrea kvefaðist... svo meira... svo pensílín.. því hún er að fara í HNE aðgerð á morgun... svo fékk hún ælupest.. svo hresstist hún aðeins.. En byrjaði að æla í nótt.. og það var enginn leikskóli... Svo er ég að byrja í mallanum núna :( en vona það sé ekkert því ég er að fara vinna... Og svo er aðgerð á morgun og hvernig verður þá ?? Arrgg.. Skólinn skíður á undan mér og hlutaprófin með... Vonandi næsta vika verði betri! ;)

Öfunda Jónínu... Hún er að versla útí Glasgow núna :(

Veturinn er kominn

09. nóvember 2006 klukkan 03:34

Nú er veturinn komin for real held ég bara... Var að fá mér ný vetradekk og þvilíkt morð!!! fór á hausinn við þetta helv... hehe.. Búin að vera gera alla víkara geðveika hérna að hanga á eftir mér á óshlíðinni á 50 km hraða... ;) hehe.

Afmæli mitt og pabba á helginni svo ég ætla skella mér á ball með baggalút. Guðmundur og Raquel eru að velta fyrir sér að koma kannski og það verður bara þvílíkt stuð alla helgina.. hehe..

Alveg fullt að gera í skólanum, önnur hlutaprófaruna að hrynja yfir og ritgerðaskil og ég að deyja úr skólaleiða.. En það eru bara 2 kennsluvikur eftir svo koma bara próf!!! og svo JÓLAFRÍ!!!! jibbý!!!

en langar að sýna ykkur myndband sem ég stal af síðunni hennar Raquelar... ég hló mig máttlausa!!! ;)

http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=216&id=2505

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Hulda Birna Albertsdóttir
  • Netfang: huldabal@hotmail.com
  • Staður: Borganes/Hvanneyri
  • Atvinna: Sjúkraliði/ háskólanemi
  • Hjúskaparstaða: Single..

Innskráningar kubbur