Auglýsing

Leit

Engin

20. ágúst 2008 klukkan 16:48
  • Það sem ég vildi sagt hafa er:
  • Ég HATA vistfræði
  • Vistfræði er asnalegasta og leiðinlegasta fag í heimi.. (kannski bara af því ég er að þykjast vera læra það)
  • Er að fara í próf í vistfræði á morgun klukka 0900!
  • Ég er búin að eignast 3 ný gæludýr: kóngfiðrildi sem situr alltaf og spjallar við mig í smók.. Hrossaflugu sem hlustar á mig úti í símanum og fylgist með kjaftasögunum.. og eina litla fiskiflugu sem passar að ég einbeiti mér ekki um of af skólabókunum.. og er nýji skugginn minn!
  • Langar að djamma um helgina
  • Er að fara byrja í skólanum á þriðjudaginn og er ekkert spennt eftir þetta litla frí sem ég hef haft frá skólabókunum í sumar :P
  • Fullt af fólki að flytja á hvanneyri og bærinn er að vakna aftur upp frá sumarsvefninum
  • Andrea er byrjuð á eldri deildinni á leikskólanum. Litla barnið mitt að vera stórt :D
  • Sendið mér línu ef þið hafið áhuga á að djamma í bænum á föstudaginn hehe..
  • Ble

á ég að halda þessu gangandi?

22. júní 2008 klukkan 21:39
æji hef verið löt við að blogga undafarið ;P kannski vegna þess að ég hef voða lítið að segja hér inni. ég vinn, fer heim, heng og geri eitthvað og fer svo að sofa.
En reyndar hafa helgarnar undanfarið verið ágætar hjá mér.
Það sem er helst í fréttum hér á bæ er:
Á seinustu helgi var mamma að útskrifast frá kennaraháskóla íslands með BA í þroskaþjálfa. Kongrat´s mama ;) Í tilefni þess bauð hún börnunum sínum, manni, afa og ömmu og afa frá bol á Rauðará. Mmmmmmmm þvílíkur snilldarmatur.. Humar í forrétt, nautalund í aðalrétt og gegguð súkkulaðikaka með ís í eftirrétt. Þetta var alveg geggað ;)
Guðmundi bróði tókst svo að brjóta í sér rifbein og gata lungun ásamt því að vera allur krambúleraður með því að detta eina ferðina enn á krossaranum!! og amma stína datt og braut í sér lærlegginn daginn eftir honum! ef hann hefði verið í sólahring lengur á spítalanum hefðu þau hrakfallabálkarnir í fjölskyldunni legið saman á bæklunardeildinni á lansanum :P

Eins og ég er nú dýraóð og það má ekki vera með dýr hér (ss. ketti, hunda og kanínur) varð ég að fá mér eitthvað, svo ég er komin með 16 fiska í búr hér í stofuna hjá mér :D

Á föstudaginn fór ég með Andreu til augnlæknis og það kom í ljós  að hún þarf að fara nota gleraugu greyið ;(

Við skelltum okkur í útilegu í Bjarkarlund um helgina svo með Guðrúnu og Breka, Sóley, Ísabellu (og smá sást í Kristbjörgu því hún var alltaf að vinna) jóni, Gúu og Jóa og fullt af vinum þeirra. Helgin heppnaðist rosa vel og var rosa fínt. Veðrið var mjög gott og komum við guðrún vel brenndar í framan heim ;( en sáttar við að fá sól :D

That´s all people for now..

Góðan dag :D

16. maí 2008 klukkan 16:58
Hvað segja bændur?? hehe

Það sem er að frétta af þessum bæ er að sl mánudag var einburinn minn fjagra ára ;) og auðvitað var haldið upp á það með hátíðheitum. Ég hélt barnaafmæli fyrir hana frá 12 til 14 þar sem hún bauð krökkunum á leikskólanum og svo var ég með fjölskyldu og aðra vinaboð frá 3. þannig hún fékk 2 afmæli sama daginn ;). Ekki leiðinlegur dagur þar skal ég segja ykkur ;)
En við höfðum ákveðið að fara vestur um hvítasunnuhelgina, en vegna þess hve fátækur námsmaður maður er og mikil útgjöld komumst við ekki, og vorum þá í stað bara heima í rólegheitunum (eða þannig ;P)

Ég er búin í skólanum (þangað til viku í júní ) og byrjuð að vinna á heilsugæslunni í Borganesi. Mér líkar það alveg stórvel og fæ að gera ekkert smá mikið þarna ;) til dæmis var ég að gipsa og taka röntgen í dag svo eitthvað sé nefnt ;) En það er svolítið viðbrigði að vera ekkert heima frá 8 til hálf fimm alla daga, maður hafði það svo gott í vetur að vera bara heima að læra flest alla daga hehe.

Nú er á fullu sauðburður út um allar sveitir og kindurnar sem fengu hjá mömmu og pabba búnar að bera (grenj!! og ég komst ekkert til að skipta mér af ) en við Andrea fórum nú í fjárhúsið hér uppfrá sem er ábyggilega 400 kinda hús, og kíktum á lömbin og kindurnar. ég gat nú ekki mikið setið á mér, og var farin að skipta mér af eftir smá stund hehe.. en það er bara svona þegar maður er alveg húkkt.. varð að sjá smá og finna þessa tilfinningu , enda dreymdi ég kindur og lömb bæði um nóttina og hugsaði um það þegar ég vaknaði (en var samt á leið í próf) hehe

Kvittiði kindurnar mínar :D

hvað skal segja þegar lömbin þegja :P

01. maí 2008 klukkan 19:59
æji það er nú ekki gaman hér á bæ. ég á að vera læra á fullu, en í stað er ég með fárveikt barn heima :S Andrea er með fimmtu veikina heitir það, sem er eitthver veirusjúkdómur sem veldur bjúg og útbrotum, streptocokka sýkingu og hita. Ekkert smá slöpp, liggur bara upp í sófa og horfir á videó. En ég á að fara í vistfræðipróf á þriðjudaginn og sé ekki fram á að það verði mikill lærdómur yfir helgina, því ekki get ég einu sinni sett hana í pössun því þetta er smitandi ;( en ég hugsa að ég taki bara sjúkrapróf í ágúst og hætti að stressa mig á þessu.
Jónína er að fara skíra á laugardaginn og er mikill spenningur að vita hvað prinsessan á að heita ;) (vona að ég komist ;P )

Hvað er að ske í þjóðfélaginu í dag segji ég nú bara??? efnahagskerfið er í klessu, fasteignaverðið að fara til anskotans, vörubílstjórar brjálaðir, meirihlutinn sprunginn í Bolungarvík og bæjastjóranum sagt upp... shit.. er samt ekki ánægð með það!!
Er ekki bara málið að fara gera eitthvað í þessu ríkistjórn???!!! ég segi eins og stjórnarandstæðan: meirihlutinn er steinsofandi á þingi og gerir ekki neitt !!


Huldan pirruð á þessu öllu saman :P

leti og eyrðaleysi :P

13. apríl 2008 klukkan 16:35

Allir hafa upplifað daga þar sem þeir hafa nóg að gera og nenna ekki neinu.. það er einmitt svoleiðis dagur hjá mér í dag.. eða helgi þar að segja..
Er að reyna hanna leikskólalóð og vatnslita og læra í vistfræði.. en bara nenni þessu ekki, nenni ekki neinu núna.. en samt að drepast úr eyrðaleysi ;( þetta er ekki skemmtileg tilfinning hehe.

það er bara ekki mánuður eftir af skólanum og svo er bara vinna eins og brjálæðingur :D
Ég byrja vinna 15 maí á heilsugæslunni í Borganesi eftir að ég tek eina helgi í burð fyrir vestan ;)

sáu þið söngvakeppnina?? heheheh var ekki flott atriðið hjá magga og co úr lbhi??? mér fannst það ýkt fyndið.. létu eins og þeir væru sveitavargar dauðans haha..
en mér fannst þetta lag sem vann ekki hafa átt að vinna, ég hefði frekar viljað sjá hann úr ármúla vinna ;D
Hvað með ykkur?

Prinsessan komin í heiminn

04. apríl 2008 klukkan 10:26

Litla prinsessan hennar jónínu.. Kom í heiminn klukkan 1845 í gær, tæp 18 merkur og 52cm ! ;)

Var líka að henda inn marsalbúmi í myndirnar mínar..
Farin að hafa mig til fyrir GRÍMUBALL!!! Verðum ógisslega flottar ;)

Ritstífla

29. mars 2008 klukkan 10:54
Fékk allt í einu þennan þvílíka móral að hafa ekki bloggað lengi (var líka komin með hundleið á að sjá alltaf sömu færsluna efst :P)

Það sem er helst að frétta á þessum bæ er að við fórum vestur um páskana og höfðum það ekkert smá fínt.. fórum á skíði (andrea líka) og tókst ekkert smá vel :P kíkti á aldrei fór ég suður, fór í skírnarveislu hjá Dagný og Ómar og litli prinsinn fékk nafnið Óskar Ingimar. En svo má ekki gleyma að ég fór náttúrlega aðeins út á lífið :P
Nú er ég komin heim og byrjuð í skólanum, en það er stutt stopp hér því ég er að pakka ofan í tösku og bruna í sumarbústað með UMSK liðinu :P

Ég bíð og bíð eftir að litla prinsessan komi í heiminn hjá Jónínu og Óla :P hún átti að koma fyrir 8 dögum!! Greyið....

Og aftur byrjar stuðið :P

10. mars 2008 klukkan 21:03

við erum búin að hafa það ekkert smá næs í fríinu í þetta skiptið.. ég er búin að suma gardínur, þrífa, fara 3 til rvk og sækja um sumarvinnu :P Var líka að passa frá miðvikudagskvöldi fram á sunnudag.. marga krakka og mikil læti svo ekki sé minnst á alla eldamennskuna hehe.. allavega held ég að ég hafi fengið nóg af krökkum í smá tíma hehe..

Er að fara svo vestur á föstudaginn og hitta pabba og kindurnar mínar :D ohh langt síðan ég hef hitt elskurnar mínar heheheheheh nú hlær systir mín mikið!!

PRÓFAFRÍ

27. febrúar 2008 klukkan 00:51
ahhh gaman í dag klukkan 11.. grasafræði próf búið... thank god!! kann allt um kynlíf plantna (nice to know!)
Er komin í 2 vikna frí og svo fer ég í skólann í viku, svo fer ég í páskafrí!!! nice!!!!

Hvað finnst ykkur um eurovisionlagið??

omg ég á ekki orð yfir þetta lið!!! oft glimur hæst í tómri tunnu???!!! gæturu verið meira egó!!!??? þetta er eins og að stinga tungunni út úr sér og segja gott á þig!! ég vann!!

Við skulum ekkert fara lengra út í það!! sá sem kallar sig euróbandið!?

ég hefði viljað að lagið hennar svölu björgvins hefði farið áfram.. viggle viggle song eða hvað það heitir..
tjáið ykkur :P

Maska eða öskudagur??

06. febrúar 2008 klukkan 19:29
Þetta var forvitnileg upplifun af öskudegi á suðurlandi í dag. þótt ég hafi nú búið í Reykjavíkinni í 3 ár upplifði ég aldrei öskudaginn því ég átti ekki barn. Í dag var þetta öðruvísi.

í Bolungarvík er maskað á bolludag, sprengidag og öskudag. á öskudag voru eldri krakkarnir með ,,heimild" fyrir því að mega ræna af yngri krökkunum sælgjæti (þess vegna maskaði ég ekki á öskudag :D)
Á ísafirði er maskað á bolludag. (held reyndar að það sé eitthvað að aukast dagarnir sem maskað er þar)
Á Hvanneyri mæta krakkarnir í grímubúning á leikskólann og fara svo í fyrirtæki og syngja fyrir þau, og fá nammi. En það heitir ekki að MASKA, það heitir bara öskudagur..
Það komu reyndar grunnskólakrakkar hér í dag, og sögðust vera að ,snýkja nammi" ... aldrei sagði ég það.. ég söng bara.. hehe

En nóg með það.. Fullt að gera í skólanum.. same old... hehe
Var að henda inn nokkrum myndum á myndasíðuna mína og er loksins búin að opna síðuna hennar Andreu og bæta nokkrum myndum þar inn.. ;D

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Hulda Birna Albertsdóttir
  • Netfang: huldabal@hotmail.com
  • Staður: Borganes/Hvanneyri
  • Atvinna: Sjúkraliði/ háskólanemi
  • Hjúskaparstaða: Single..

Innskráningar kubbur